Heilsuefling

HOLISTIC

8 VIKNA NETNÁMSKEIÐ Í ÁTT AÐ MEIRI VELLÍÐAN

Ítarleg myndbönd og fræðsla um heilbrigt líferni, allt frá hollu mataræði yfir í fræðslu um hugarfarið og velgengni.
Tveggja mánaða netnámskeið sem þú tekur á þínum hraða, þegar þér hentar. 

Við tökum tveggja vikna hreinsun á meðan námskeiðinu stendur til þess að endurstilla þarmaflóruna, blóðsykurinn og hámarka þína heilsu & vellíðan. Einnig til að mynda nýja og betri ávana, heilbrigðara hugarfar og læra að endurstilla taugakerfið. 

rosemary, set, collection-1661525.jpg

Þetta námskeið er fyrir þá sem vilja læra meira um heilsuna, hreinsa líkamann, skilja hvað hollt mataræði þýðir í rauninni.

Einnig er þetta tilvalið fyrir leiðbeinendur & lífsstílsráðgjafa sem vilja kafa dýpra í heilsuna til þess að geta deilt sinni vitneskju með viðskiptavinum. 

Ertu heilsumarkþjálfi, ráðgjafi, jógakennari, einkaþjálfari, hjúkrunarfræðingur, eða annars konar þerapisti?

Viltu fá dýpri nálgun að heilbrigðum lífsstíl, hollu mataræði, rótarástæðu sjúkdóma, góðu hugarfari og velgengni, streitu, hvernig taugakerfið virkar og svo framvegis, til þess að geta miðlað því áfram til þinna viðskiptavina?

UMBREYTTU ÞÍNU LÍFI!

Breytt hugarfar – hollara mataræði – betri lífsstíll – tilgangur & meiri vellíðan.

Við förum ekki einungis djúpt ofan í hollt mataræði, blóðsykurinn, líffærin, meltinguna, heldur einnig taugakerfið, öndun og hugleiðslu, velgengni og árangur, fast vs. vaxandi hugarfar, myndun nýja ávana, endurforritun heilans og margt fleira. 

Við erum að endurforrita hugarfarið, neikvæð hugsanamynstur, slæma ávana & andlegt ójafnvægi almennt. Við vinnum í því að endurforrita heilann til þess að bæta lífsgæðin og búa til nýja ávana sem styðja við nýtt og betra líf.

Andleg vellíðan, gott hugarfar, núvitund, gildi, tilgangur og annað slíkt eru ekki síður mikilvægir þættir í að bæta heilsu líkamans.

Við leggjum áherslu á að hámarka þau næringarefni sem líkaminn þarf, en ekki að svelta líkamann! Borða fullnægjandi magn af næringarþéttri fæðu sem er lífaðgengileg fyrir líkamann (e. bioavailable), til þess að stuðla að heilbrigði, styrkja ónæmiskerfið, minnka bólgur, auka orkuna og bæta lífsgæðin. 

Tveggja vikna hreinsun

lemon, basil, hairy-906141.jpg

Bætiefnapakki í boði

Í þriðju viku námskeiðsins þá hefst tveggja vikna hreinsun þar sem við einblínum á hreint mataræði. Ríkt af íslensku kjöti, fisk, sterkjulitlu grænmeti og fleiru.

Við sniðgöngum sykur í öllu formi m.a. hvítan sykur, sæta ávexti, djús, rótargrænmeti (gulrætur eru í lagi), gervisætu, bakkelsi & þess háttar.

Forðumst kaffi, unnar kjötvörur, áfengi, aukaefni í matvælum, mjólkurvörur (smjör í lagi) og kornvörur. 

Innifalið í hreinsuninni er uppskriftarbók með öllu því sem er ráðlagt að borða.

Hollt mataræði, venjulegur heimilismatur gerður á hollan máta og dásamlegar uppskriftir. Við viljum einblína á að hámarka þau næringarefni sem við getum gefið líkamanum til þess að upplifa aukna orku, minni verki og meiri vellíðan.

Ef þú vilt fara skefi lengra í því að bæta heilsuna þá erum við einnig að bjóða upp á sérútbúin bætiefnapakka á góðum afslætti. Til þess að styðja við hreinsun lifrarinnar, bæta meltinguna, efla heilsu líffæranna, styrkja ónæmiskerfið, hreinsa blóðrásakerfið og slaka á taugakerfinu.

Kostnaður fyrir bætiefnin gerir aukalega 26.600 kr. (að andvirði 33.250 kr) – engin skylda.

Það er engin skylda að taka bætiefnin til þess að geta tekið þátt í hreinsuninni en ég mæli hiklaust með því að taka inn bætiefni að staðaldri til þess að stuðla að góðri langtíma heilsu.

Hér hef ég valið algengustu bætiefnin sem flestum einstaklingum skortir, ásamt nokkrum jurtum sem styðja við hreinsun líkamans, efla meltinguna og drepa slæmar örverur.

INNIFALIÐ Í BÆTIEFNAPAKKANUM:

HVERNIG VIRKAR HEILSUEFLING HOLISTIC?

8 vikna netnámskeið á þínum hraða. Þú færð aðgang að netnámskeiðinu í heilt ár eftir að skráningu lýkur.  

Netnámskeið á þínum hraða!

Heilsuefling Holistic er í formi netnámskeiðis sem þú getur tekið á þínum hraða, hvenær sem þér hentar. Nýtt myndband birtist í hverri viku og hægt er að horfa á þau eins oft og þú vilt. Ótakmarkaður aðgangur að netnámkeiðinu í heilt ár.

Einnig tilvalið fyrir heilsuráðgjafa

Ef þú vilt auka þína þekkingu á heildrænni heilsu, hollu mataræði, sjúkdómum í meltingunni, blóðsykrinum og taugakerfinu til þess að verða betri í þínu starfi. Eða jafnvel kafa dýpra í hugarfarið, ávana og markmið, velgengni, hugleiðslu og endurforritun heilans, þá er Heilsuefling Holistic tilvalin fyrir þig.

Ítarleg fræðsla

Myndbönd með ítarlegri fræðslu um almenna heilsu birtist í hverri einustu viku í 8 vikur. Hvernig á að Koma meltingunni í jafnvægi, blóðsykringum, efnaskiptunum, mataræðinu & fl.

Ásamt fræðslu um hugarfarið, velgengni, stefnu, gildi, vellíðan og ýmislegt sem eykur árangur í lífinu.

Matseðill

Matseðill og ýmis heilsuráð fylgja með til þess að styðja þig í gegnum þitt persónulega ferli.

Matseðill með fullt af hollum uppskriftum, ásamt ljúffengum eftirréttum, sem hjálpa líkamanum að viðhalda heilbrigðri þarmaflóru, jafna blóðsykurinn, auka orku og bæta almenna heilsu.

TAKTU ÁBYRGÐ Á
HEILSUNNI NÚNA!

SKRÁNING

Heilsuefling Holistic kostar 22.963  kr á mánuði í 3 mánuði.

Nýtt fræðsluefni opnast í hverri viku í 8 vikur. Þú getur horft á námskeiðið hvenær sem þér hentar í heilt ár. 

Fyrir þá sem vilja leggja sig fram að bæta heilsuna enn meira þá erum við einnig að bjóða upp á sérútbúin bætiefnapakka á góðum afslætti. 
Kostnaður fyrir bætiefnin gerir aukalega 26.600 kr. (að andvirði 33.250 kr) – engin skylda.

Heilsuefling Holistic

kr. 22.963 á mánuði / 3 mánuðir
  • 2ja vikna hreinsun og hollar uppskriftir á rafrænu formi.
  • Listi yfir heilsuvörur og mat sem Holistic mælir með.
  • Afsláttur af ýmsum heilsuvörum og bætiefnum.
  • Margir klukkutímar af fræðslu í formi myndefnis, texta og glærusýninga. Ný fræðsla birtist í hverri viku í 8 vikur.
  • Ítarleg fræðsla um hollt mataræði, heilbrigðan lífsstíl, öndun & taugakerfið, heilbrigt hugarfar, velgengni og árangur, ávana og markmið, hugleiðslu og margt fl.
  • Netnámskeið á þínum hraða og þínum vegum - aðgangur að námskeiði í 1 ár eftir að skráningu lýkur.

EFTIRFARANDI FYRIRLESTRAR ERU INNIFALDIR Í
HEILSUEFLINGU HOLISTIC:

Fyrirlestrar um mataræði og heilsu

Fyrirlestrar um hugarfar og andlega heilsu

Ég verð þinn leiðbeinandi í Heilsueflingu Holistic!
Sjálf glímdi ég við meltingarvandamál í mörg ár, bakflæði, blóðsykursójafnvægi, hausverk og feira. 

Ég er hér til þess að aðsoða þig að taka ábyrgð á eigin heilsu líkt og ég hef sérhæft mig í.

Ég er menntuð í Functional Medicine eða hagnýtri lækningu frá The School of Applied Functional Medicine í Bandaríkjunum. Þessi fræði leggur áherslu á að finna rótarástæðu sjúkdóma eða vanlíðunar á náttúrulegan hátt, án lyfja. Einnig er ég heilsumarkþjálfi og tók nám í hreyfivísindum hjá CHEK Institute og nám í Holistic Lifestyle Coaching eða heildrænni lífsstílsþjálfun stig 2 hjá CHEK.

Ásamt því hef ég lokið námi í nuddi, einkaþjálfun og tveimur jógakennaranámum, bæði frá Tælandi og Íslandi.

Ég hef haft gríðarlegan áhuga á heilsu í mörg ár, bæði andlegri og líkamlegri. Ég blanda minni þekkingu saman til að veita þér sem bestu þjónustu og mögulegt er.

HÆ! ANNA LIND HEITI ÉG

Í HVERJU FELST HEILSUEFLING HOLISTIC?

HEILBRIGT LÍFERNI

Við förum ítarlega yfir hvað heilbrigður lífsstíll er, hollt mataræði og hvaða bætiefni Holistic mælir með að taka.

Aukin orka, betri svefn, betri melting, meiri viljastyrkur, betra skap og líðan, sterkt hugarfar, heilbrigt taugakerfi, ásamt ýmsu fleiru! 

BÆTT MATARÆÐI

Við einblínum á hreint mataræði. Ríkt af íslensku kjöti, fisk & öðru sjávarfangi, grænmeti og ávöxtum með litlu sykurmagni.

Innifalið á námskeiðinu er uppskriftarbók með öllu því sem Holistic mælir með.

HUGARFAR & LÍFSSTÍLL

Síðast en ekki síst þá hefur hugarfarið og lífsstíllinn okkar mikil áhrif á jafnvægi í líkamanum þar sem öll kerfi líkamans eru tengd. Mikilvægt er að bæta heilsuna á öllum sviðum til þess að hámarka árangur.

Námskeiðið inniheldur ákveðnar hugleiðslur sem stuðla að aukinni heilsu, fræðslu um öndunaræfingar og taugakerfið, ásamt aðferðum til þesa að efla hugarfarið og auka árangur í lífinu.

HEFURÐU EINNIG ÁHUGA Á DJÚPHREINSUN HOLISTIC?

Ath. Heilsuefling Holistic gengur upp í kostnað fyrir Djúphreinsun Holistic. Ef þú hefur lokið Heilsueflingu Holistic en langar til þess að taka þátt í 12 vikna  Djúphreinsunar-námskeiði Holistic þá þarftu einungis að greiða mismuninn sem gerir um 25.000 kr. –  þar sem margir fyrirlestrar í Djúphreinsun Holistic eru einnig innifaldir á þessu námskeiði. 

Scroll to Top