10 daga hreinsun til að endurstilla líkamann!
Tveggja vikna netnámskeið með 10 daga hreinsun þar sem við tökum út alla algengustu óþolsvaldana í mataræðinu sem gætu verið að valda bólgum og heilsufarsvandamálum, t.d. IBS, verkjum, vefjagigt, hausverk, vanlíðan, þreytu, svefnleysi, heilaþoku og þess háttar.
Við forðumst fæðutegundir eins og glúten, mjókurvörur (smjör er í lagi), sykur, kaffi, áfengi og fleiri óþolsvalda sem geta verið að skerða meltinguna og bæla ónæmiskerfið. Í hreinsuninni erum við einnig að einblína á lágkolvetnamataræði til þess að endurstilla blóðsykurinn, bæta efnaskiptin, orkuna, svefninn og styrkja ónæmiskerfið. Mataræði ríkt af kjöti, fisk og grænmeti.
Netnámskeið með helling af fræðslufyrirlestrum samhliða góðum stuðning í lokuðum hópi með tugi Íslendinga.
Grunnhreinsun Holistic
Næsta námskeið hefst 22. júní 2025
Vertu samferða tugi Íslendinga í að taka heilsuna í gegn, endurheimta orkuna, auka vellíðan & efla hamingjuna. Ásamt frábærri fræðslu, fjölda fyrirlestra og góðum stuðning.
Ávinningar hreinsunarinnar
Grunnhreinsun Holistic er 10 daga heildræn hreinsun sem er þróuð með það í huga að taka út bólguvaldandi fæðu úr mataræðinu, endurstilla blóðsykurinn og bæta meltinguna. Og þar af leiðandi endurheimta orku og vellíðan.
Ef þú fylgir leiðbeiningunum sem fylgja vel eftir þá áttu góðan möguleika á því að bæta svefn, minnka sykurlöngun, auka orku, grennast, minnka bólgur í líkamanum, jafna blóðsykur og kólesteról, koma jafnvægi á meltinguna, minnka verki, bæta andlega líðan og fleira.
Hentar þessi hreinsun þér?
Tilgangur þessarar hreinsunar er að auðvelda þér að viðhalda hreinu og hollu mataræði til lengri tíma, um leið og við endurstillum blóðsykurinn og bætum meltinguna þá minnkar sykurlöngun og stanslaus löngun í mat og kolvetni, orkan er einnig meiri þar sem líkaminn er ekki á fullu að vinna úr eiturefnum, þar af leiðandi höfum við meiri orku til þess að útbúa góðan mat og viðhalda heilbrigðum lífsstíl.
Grunnhreinsun Holistic hentar bæði …
- Fyrir þá sem borða nú þegar hollt en vilja samt sem áður hreinsa alveg til í mataræðinu og endurstilla líkamann þannig að hann virki upp á sitt besta.
- Fyrir byrjendur sem vilja taka eitt skref í einu og byrja rólega að bæta mataræðið og lífsstílinn og treysta
sér ekki til að hoppa strax í þriggja mánaða hreinsun.
Viltu bæta heilsuna en hefur lítinn tíma?
Af hverju hreinsun? Heildræn & vísindaleg nálgun
Langvarandi sykurlöngun, bólgur, svefnleysi, orkuleysi, vanlíðan og óregla í meltingu eru ekki bara smávægileg óþægindi, þau benda til undirliggjandi ójafnvægis á frumustigi sem dregur úr orku og vellíðan. Þessi 10 daga hreinsun einblínir á mikilvægustu þætti heilsunnar með fimm meginstoðum.
Blóðsykur og efnaskipti:
Tímabundin fasta og mataræði án viðbætts sykurs og einfaldra kolvetna róar insúlínsvörun, eykur insúlínnæmi á fáeinum dögum og gerir líkamanum kleift að nýta fituforðann sem stöðuga orku; sykurlöngun minnkar því án átaka.
Melting og örveruflóra:
Með því að sleppa bólguvaldandi fæðu eins og mjólkurpróteinum, viðbættum sykri, óhollum fitusýrum og glúteni þá róast slímhúðin í þörmunum. Hreint og næringarríkar dýraafurðir, grænmeti og gerjuð matvæli næra góða bakteríuflóruna sem styrkir ónæmiskerfið, hormónajafnvægi og bætir jafnvel skap.
Bólgur og ónæmiskerfi:
Mataræði stútfullt af magnesíum, sinki og omega-3 dregur úr bólgumörkum eins og CRP. Minni bólga þýðir minni verkir, meiri liðleiki og hraðari endurheimt.
Lifur og afeitrun:
Lifrin nýtir tvö efnaskiptaferli (Phase I & II) til að óvirkja eiturefni. Á hreinsuninni forðumst við óþarfa eiturefni og aukaefni í matvælum, rotvarnarefni, áfengi og kaffi sem setja mikið álag á lifrina í daglegu lífi. Þátttakendum stendur einnig til boða bætiefni sem kallast “Liver Support & Detox” sem inniheldur mjólkurþistil, NAC, fíflarót og fleiri jurtir sem
styðja glútaþíón-myndun, hraða afeitrun og styðja við hreinsun lifrarinnar.
Venjur og hugarfar:
10 daga Grunnhreinsun Holistic er frábær leið til þess að búa til nýjar, hollari venjur í mataræðinu og lífsstílnum sem festast og verða hluti af þínu daglega lífi. Þú færð hagnýt verkfæri sem þú getur nýtt þér til frambúðar – þetta er lífsstílsbreyting, ekki skammtímakúr. Þessir 10 dagar eru bara byrjunin til þess að þróa með þér nýjar venjur og sanna fyrir þér hversu auðvelt þetta er.
Þessar fimm stoðir vinna saman að öflugri heildrænni endursetningu sem eykur orku, dregur úr bólgum og skilar varanlegum árangri – allt á aðeins 10 dögum
Hvernig Virkar Grunnhreinsun Holistic?
Hreint mataræði
Í 10 daga fylgjum við hreinu mataræði með áherslu á hreint kjöt, fisk, sterkjulítið grænmeti og ávexti með lágan sykurstuðul. Við forðumst sykur, áfengi, kaffi, gervisætu, mjólkurvörur (smjör er leyft) og ákveðnar kornvörur. Fullt af ljúffengum uppskriftum fylgja.
Bætiefni
Þátttakendum býðst til þess að kaupa afsláttarpakka af bætiefnum með hreinsuninni (val) með öllum þeim helstu næringarefnum sem líkaminn þarf, einnig til þess að styðja við hreinsun líffæranna.
Bætiefnapakkinn inniheldur: Magnesíum byltinguna, Liver support & detox blöndu, góðgerla, steinefnasölt, & Shilajit.
Netnámskeið
Grunnhreinsun Holistic er í formi netnámskeiðis með takmarkaðan fjölda þátttakanda hverju sinni.
Ný myndbönd birtast á nokkurra daga fresti á lokuðu heimasvæði og hægt er að horfa á þau eins oft og þú vilt út hreinsunina (aðgangur í 1 mánuð aukalega).
Stuðningur og hvatning
Hópþjálfun í gegnum netið til þess að auka driftkraft og hvatningu.
Við bjóðum upp á lokaðan facebook hóp þar sem okkur er frjálst að deila uppskriftum, spurningum, árangri og þess álíka.
Ítarleg fræðsla
Heilsufyrirlestrar með ítarlegri fræðslu um hreint mataræði og almenna heilsu. Hvernig á að bæta efnaskiptaheilsu, jafna blóðsykurinn, auka orku, velja hollt, fræðsla um bætiefni & fl.
Uppskriftir
Matseðill fylgir með fullt af hollum uppskriftum, ásamt ljúffengum eftirréttum, sem hjálpa líkamanum að minnka bólgur, jafna blóðsykurinn og bæta almenna heilsu.
Verð fyrir Grunnhreinsun Holistic:
Tveggja vikna netnámskeið með aðgang að fræðslu á lokuðu heimasvæði & daglegum stuðningi í gegnum lokaðan hóp á facebook.
Þátttakendum býðst kostur á að kaupa bætiefnapakka til þess að taka á hreinsuninni, til þess að auka orku, endurstilla þarmaflóruna og hjálpa líkamanum í hreinsunarferlinu (bætiefnin eru valkvæð).
Kostnaður fyrir bætiefni er 27.928 kr (afsláttarverð fyrir þátttakendur).
Sjá upplýsingar um bætiefnin við skráningu.
Bætiefnapakki
-
Í boði er að kaupa bætiefnapakkinn sem inniheldur: Magnesíum byltinguna, Liver support & detox blöndu, góðgerla, steinefnasölt & Shilajit (bætiefnin eru valkvæð)
Netnámskeið: Staðgreiðsla
-
Hollar uppskriftir á rafrænu formi.
-
Listi yfir heilsuvörur og mat sem Holistic mælir með.
-
Afsláttur af ýmsum heilsuvörum og bætiefnum.
-
Margir klukkutímar af fræðslu í formi myndefnis, texta og glærusýninga.
-
Stuðningur & lokaður umræðurhópur á facebook í 2 vikur.
Netnámskeið:
Raðgreiðsla
-
Hollar uppskriftir á rafrænu formi.
-
Listi yfir heilsuvörur og mat sem Holistic mælir með.
-
Afsláttur af ýmsum heilsuvörum og bætiefnum.
-
Margir klukkutímar af fræðslu í formi myndefnis, texta og glærusýninga.
-
Stuðningur & lokaður umræðurhópur á facebook í 2 vikur.
Skráning í Grunnhreinsun
Eftirfarandi fyrirlestrar eru innifaldir í Grunnhreinsun Holistic
- Hvernig virkar Grunnhreinsun Holistic
- Helstu áherslurnar í mataræðinu
- Blóðsykursstjórnun og ráð gegn sykurlöngun
- Nauðsynlegustu bætiefnin fyrir líkamann - gæði skipta máli
- Hvað er hollt mataræði
- Hvaða fæða er næringarþéttust og frásogast vel?
- Gæði matarins - Skiptir lífrænt máli?
- Mataræði forfeðra okkar
- Borðaðu í samræmi við þínar erfðir og efnaskipti
- Hámörkun næringarefna
Hæ! Anna Lind heiti ég
Ég verð þinn leiðbeinandi í Grunnhreinsun Holistic.
Sjálf glímdi ég við meltingarvandamál og ýmis heilsufarsvandamál í mörg ár, en með breyttum lífsstíl, bættu mataræði og meiri þekkingu hef ég endurheimt heilsuna mína og aldrei verið heilbrigðari.
Ég er hér til þess að aðsoða þig að taka ábyrgð á eigin heilsu og bæta líðan líkt og ég hef sérhæft mig í.
Ég er menntuð í Functional Medicine eða hagnýtri lækningu frá The School of Applied Functional Medicine í Bandaríkjunum. Þessi fræði leggur áherslu á að finna rótarástæðu sjúkdóma eða vanlíðunar á náttúrulegan hátt, án lyfja. Einnig er ég heilsumarkþjálfi og tók nám í hreyfivísindum hjá CHEK Institute og nám í Holistic Lifestyle Coaching eða heildrænni lífsstílsþjálfun stig 2 hjá CHEK.
Ásamt því hef ég lokið námi í nuddi, einkaþjálfun og tveimur jógakennaranámum, bæði frá Tælandi og Íslandi.
Ég hef haft gríðarlegan áhuga á heilsu í mörg ár, bæði andlegri og líkamlegri. Ég blanda minni þekkingu saman til að veita þér sem bestu þjónustu og mögulegt er.

Endurstilltu líkamann á aðeins 10 dögum
Taktu fyrsta skrefið í átt að betri vellíðan með góðri hreinsun, fræðslu & stuðningi.
Algengar spurningar
Hver er heildarkostnaður fyrir námskeiðið?
Kostnaður fyrir netnámskeiðið er: 25.900 kr
Einnig er val um að fá bætiefnapakka með 6 mismunandi bætiefnum sem kostar 27.928 kr. (afsláttarverð fyrir þátttakendur).
Hægt er að velja um greiðsludreifingu.
Sjá skráningu ofar á heimasíðunni.
Hvernig virkar Grunnhreinsun Holistic?
1. Hreint mataræði: Við einblínum á lágkolvetnamataræði í 10 daga og sniðgöngum algenga óþolsvalda í mataræðinu sem valda ýmsum heilsufarseinkennum. Einnig sniðgöngum við fæðu sem hækkar blóðsykurinn, eykur bólgur og slæmar bakteríur í þörmunum.
- Fjarlægjum bólgumyndandi fæðu & algenga óþolsvalda (glúten, sykur, mjólkurvörur (smjör í lagi), egg, áfengi, kaffi, soja, maís, baunir & belgjurtir, unnin sætuefni o.fl.).
- Einblínum á kjöt, fisk, grænmeti & tímabundna föstu.
Uppskriftir og einfaldir matseðlar fylgja.
2. Bætiefnapakki í boði: Þú færð kost á að kaupa sérvalin hágæða bætiefni með 20% afslætti.
Bætiefnapakkinn innifelur:
– Steinefnasölt frá Upgraded Formulas sem frásogast 99,9% í líkamanum
– Magnesíum Byltinguna
– Shilajit
– Gut mate góðgerla
– Liver support & Detox bætiefni
Fullt verð fyrir bætiefnapakkann er 34.910 kr samtals.
Verð fyrir þátttakendur 20% afslætti er 27.928 kr.
Bætiefnin eru valkvæð en þau geta verið mjög nauðsynleg og gagnleg þegar líkaminn er í hreinsunarferli.
3. Fyrirlestrar & fræðsla: á námskeiðinu færðu aðgang að tugi fyrirlestra um almenna heilsu, hollt mataræði, blóðsykursstjórnun og fleira!
Fyrirlestrar sem eru innifaldir í námskeiðinu:
- Hvernig virkar Grunnhreinsun Holistic
- Helstu áherslurnar í mataræðinu
- Nauðsynlegustu bætiefnin fyrir líkamann –
gæði skipta máli - Blóðsykursstjórnun og ráð gegn sykurlöngun
- Hvað er hollt mataræði?
- Hvaða fæða er næringarþéttust og frásogast
vel? - Gæði matarins – Skiptir lífrænt máli?
- Mataræði forfeðra okkar
- Borðaðu í samræmi við þínar erfðir og
efnaskipti - Hámörkun næringarefna – hvernig getum við
hámarkað þau næringarefni sem líkami okkar
getur fengið?
4. Stuðningur & hvatning: Námskeiðinu fylgir aðgangur að lokuðum facebook sem er einungis fyrir þátttakendur á hverju námskeiði. Þar er hægt að fá svör við sínum spurningum & vangaveltum, deila uppskriftum, árangri og vera samferða tugi íslendinga í þessu heilsuferðalagi.Vertu hluti af okkar lokaða samfélagi þar sem þú færð stuðning, ráð og hvatningu frá sérfræðingum og öðrum þátttakendum.
Hver er tilgangur & ávinningur hreinsunarinnar?
Grunnhreinsun Holistic er tveggja vikna netnámskeið með 10 daga hreinsun þar sem við tökum út alla
algengustu óþolsvaldana í mataræðinu sem gætu verið að valda bólgum og heilsufarsvandamálum, t.d. IBS, verkjum, vefjagigt, hausverk, vanlíðan, þreytu, svefnleysi, heilaþoku og þess háttar.
Við forðumst fæðutegundir eins og glúten, mjókurvörur (smjör er í lagi), sykur, kaffi, áfengi og fleiri óþolsvalda sem geta verið að skerða meltinguna og bæla ónæmiskerfið. Í hreinsuninni erum við einnig að einblína á lágkolvetnamataræði tilþess að endurstilla blóðsykurinn, bæta efnaskiptin, orkuna, svefninn og styrkja
ónæmiskerfið. Mataræði ríkt af kjöti, fisk og grænmeti.
Netnámskeið með helling af fræðslufyrirlestrum samhliða góðum stuðning í lokuðum hópi með tugi Íslendinga.
Ávinningar:
Grunnhreinsun Holistic er 10 daga heildræna hreinsun sem er þróuð með það í huga að endurstilla blóðsykurinn og bæta meltinguna. Og þar af leiðandi endurheimta orku og vellíðan. Ef þú fylgir leiðbeiningunum sem fylgja vel eftir þá áttu góðan möguleika á því að bæta svefn, minnka sykurlöngun, auka orku, grennast, minnka bólgur í líkamanum, jafna blóðsykur og kólesteról, koma jafnvægi á meltinguna,
minnka verki, bæta andlega líðan og fleira.
Tilgangur þessarar hreinsunar er að auðvelda líkamanum að viðhalda hreinu og hollu mataræði til lengri tíma, um leið og við endurstillum blóðsykurinn og bætum meltinguna þá minnkar sykurlöngun og stanslaus löngun í mat og kolvetni, orkan er einnig meiri þar sem líkaminn er ekki á fullu að vinna úr eiturefnum, þar af leiðandi höfum við meiri orku til þess að útbúa góðan mat og viðhalda heilbrigðum lífsstíl.
Hvernig er mataræðið á hreinsuninni?
Við munum leggja áherslu á að sniðganga alganga óþolsvalda í mataræðinu sem valda oft lúmskum heilsufarseinkennum t.d. IBS, svefnleysi, bólgum, kvíða, höfuðverkjum, verkjum, vefjagigt, vanlíðan, þreytu og þess háttar.
Í hreinsuninni erum við einnig að einblína á lágkolvetnamataræði til þess að endurstilla blóðsykurinn, bæta efnaskiptin, orkuna, svefninn og styrkja ónæmiskerfið. Mataræði ríkt af kjöti, fisk og grænmeti.
Algengir óþolsvaldar í mataræði geta kveikt bólgusvörun, truflað meltingu og haft áhrif á hormónakerfið,
blóðsykur, ónæmiskerfið og taugakerfið. Markmiðið með 10 daga hreinsun er að taka pásu frá þessum
mögulegu truflunum svo líkaminn fái svigrúm til að endurstilla sig og komast í jafnvægi.
Hér kemur yfirlit yfir helstu óþolsvalda sem við forðumst í hreinsuninni:
- Glúten
- Mjólkurvörur (smjör er í lagi)
- Egg
- Koffín
- Sykur
- Áfengi
- Baunir & belgjurtir
- Maís
- Soja
- Gervisætuefni
Innifalið í hreinsuninni er uppskriftarbók með ljúffengum uppskriftum með öllu því sem er ráðlagt að borða.
Athugið: Grunnhreinsun Holistic snýst ekki um að svelta líkamann. Þvert á móti er lögð áhersla á að hámarka næringarefnin og borða fullnægjandi magn af næringarþéttri fæðu.
Upplýsingar um bætiefnin sem eru í boði (valkvæð)
Þú færð kost á að kaupa sérvalin hágæða bætiefnapakka með góðum afslætti sem innifelur:
- Steinefnasölt frá Upgraded Formulas:
Hágæða steinefnasölt í vökvaformi. Ein öflugasta steinefnablandan á markaðnum þar sem hún í nano stærð og steinefnin komast þannig inn í frumurnar – til þess að tryggja hámarks upptöku næringarefnanna.
Einstök formúla sem frásogast 99,99% í líkamanum. Flest steinefnasölt nýtast mjög illa í líkamanum og frásogast einungis á bilinu 4-20%. Sjá nánar hér. - Magnesíum Byltingin frá BiOptimizers:
Öflug magnesíumblanda sem inniheldur allar 7 nauðsynlegustu tegundir
magnesíums sem líkaminn þarf. Inniheldur magnesíum chelate, citrate,
bisclycinate, malate, sucrosomialchelate, taurate, orotate. Sjá nánar hér. - Gut mate góðgerlar:
Eitt af fremstu góðgerlum í heiminum. Inniheldur 12 Billion CFU og 20 breiðvirka góðgerlastofna sem hjálpa til við að endurnýja “vingjarnlegu bakteríurnar” í þörmunum sem eru mikilvægar fyrir góða heilsu.
Mikilvægt er að taka góðgerla að staðaldri nú til dags til að viðhalda heilbrigðri þarmaflóru. Sjá nánar hér. - Liver support & Detox jurtablanda:
Lifrarhreinsun & stuðningur með mjólkurþistli, steinefnum, jurtum, NAcetyl Cysteine, ásamt fleiru. Lifrin gegnum mikilvægu hlutverki í afeitrun líkamans.
Í mörgum rannsóknum hefur verið sýnt fram á að mjólkurþistill veitir lifrinni mikinn stuðning. Hann hjálpar til við að vernda lifrarfrumur gegn eiturefnum og hjálpar til við að styðja við afeitrunarferli lifrarinnar. Sjá nánar hér. - Shilajit frá Upakarma:
Náttúrulegt steinefnaefni (resin) sem safnast upp í Himalayafjöllunum og hefur verið notað í Ayurvedískri læknisfræði í aldaraðir. Það er ríkt af fulvicsýrum og yfir 80 mismunandi steinefnum sem styðja við orku, úthald og heilsu.
Shilajit getur aukið testósterónframleiðslu, bætt vöðvauppbyggingu og líkamlega frammistöðu, stutt við heilastarfsemi og einbeitingu, og virkað sem öflugt andoxandi og bólgueyðandi efni. Sjá nánar hér.
Skráning í Grunnhreinsun Holistic
Ef þú ert með spurningar um námskeiðið þá geturðu einnig sent fyrirspurn hér fyrir neðan.