8 vikna markvisst ferli þar sem við vinnum með mataræði, blóðsykursmæli, bætiefni, föstur, fræðslu og fleira til þess að endurheimta jafnvægi í blóðsykri og styrkja efnaskiptaheilsu til lengri tíma.
Námskeiðið hentar jafnt þeim sem vilja fyrirbyggja insúlínviðnám og efla heilsu sína almennt, einnig þeim sem glíma við insúlínviðnám eða sykursýki 2 og vilja taka virkan þátt í að endurheimta betra jafnvægi og bætta líðan.
Netnámskeið með ítarlegum fræðslufyrirlestrum og góðum stuðningi í lokuðum hópi með öðrum þátttakendum.
Á þessu tveggja mánaða námskeiði færðu verkfæri til að skilja hvernig þinn blóðsykurinn virkar. Hvernig daglegar venjur – mataræði, svefn, streita, föstur og hreyfing – hafa áhrif á blóðsykurssveiflur og orku. Og hvaða aðferðir styðja stöðugan blóðsykur og góða heilsu til frambúðar.
Tengir þú við eftirfarandi?
- Þreyta og orkuleysi eftir máltíðir.
- Þú verður skapstór þegar þú ert svöng/svangur.
- Þú byrjar að leita í mat stuttu eftir að þú hefur borðað.
- Þú finnur fyrir sykur- eða kolvetnalöngun, sérstaklega síðdegis eða á kvöldin.
- Þú finnur fyrir einbeitingarleysi eða heilaþoku (brain fog) yfir daginn.
- Þú finnur fyrir orkufalli um miðjan dag.
- Læknir hefur greint hjá þér hormónaójafnvægi, til dæmis PCOS, vanvirkni í nýrnahettum eða skjaldkirtilsvandamál.
- Þú átt erfitt með að léttast, jafnvel þó þú borðir lítið.
- Þú safnar fitu sérstaklega um kviðinn eða mjaðmir (aðallega hjá konum)
- Þú upplifir svefnvandamál, og finnur jafnvel fyrir svengd um miðja nótt
Ef þú svaraðir já við einhverju af þessu þá gætir þú verið með insúlínviðnám.
Í dag er um það bil 1 af hverjum 3-4 fullorðnum einstaklingum annaðhvort með sykursýki eða forstig sykursýki.
Yfir 40% þeirra sem eru með sykursýki vita það ekki. Sem þýðir að raunveruleg tíðni gæti verið enn hærri.
Það sem er sláandi er að meðal þeirra sem eru hvorki með sykursýki né forstig hennar, er næstum helmingur með insúlínviðnám.
Þegar insúlínviðnám myndast bregðast frumurnar ekki lengur eins vel við insúlíninu. Þá þarf líkaminn að framleiða meira af insúlíni til að koma sykrinum úr blóðinu og inn í frumurnar.
Insúlínviðnám er nú eitt algengasta efnaskiptavandamál í heimi. Það þróast oft hægt yfir mörg ár og tengist meðal annars mataræði, streitu, svefnleysi, bólgu í líkamanum og ójafnvægi í þarmaflórunni.
Blóðsykur þarf þó ekki að vera kominn á mörk sykursýkis til að valda skaða.
Í umfangsmikilli ástralskri rannsókn (6), sem fylgdist með yfir 10.000 einstaklingum af báðum kynjum í nokkur ár, kom í ljós að þó sykursýki tvöfaldi hættuna á ótímabærum dauða.
En það sem vakti enn meiri athygli var að jafnvel þeir sem voru aðeins með skert sykurþol og voru ennþá innan viðmiðunarmarka fyrir sykursýki, voru í um 60% meiri hættu.
Þetta sýnir að jafnvel vægt efnaskiptaójafnvægi getur haft alvarlegar afleiðingar til lengri tíma.
Mörg af algengustu efnaskiptasjúkdómum nútímans má rekja til insúlínviðnáms, þar á meðal offitu, hjarta- og æðasjúkdóma, fjölblöðrueggjastokkaheilkenni (PCOS), fitulifur (NAFLD).
Þú getur mælst með „eðlilegan“ blóðsykur samkvæmt blóðprufu, en samt haft of hátt magn insúlíns í blóðinu.
Það kann að virðast eðlilegt að hugsa að blóðsykur skipti fyrst og fremst máli fyrir þá sem glíma við sykursýki. En í raun er blóðsykurinn áhrifaþáttur sem snertir alla, óháð heilsufarsstöðu. Sykursýki 2 og insúlínviðnám birtast ekki skyndilega, þau þróast hægt og rólega og oft yfir marga áratugi, oft án þess að einstaklingurinn geri sér grein fyrir undirliggjandi breytingum.
Á þessu tímabili hefur líkaminn yfirleitt þegar sent frá sér viðvörunarmerki í formi óreglulegs svefns, skapsveiflna, meltingaróþæginda, hormónaójafnvægis og aukinnar bólgu, ásamt sveiflukenndu insúlínmagni. Raunin er að mun fleiri glíma við insúlínviðnám eða forstig sykursýkis en gera sér grein fyrir.
Hvernig Virkar Blóðsykursnámskeið Holistic?
Hreint mataræði
Í tvo mánuði fylgjum við kolvetnaskertu mataræði. Með áherslu á hreinan mat sem kemur frá náttúrunni svo sem hreint kjöt, fisk, sterkjulítið grænmeti og ávexti með lágan sykurstuðul. Við forðumst sykur, kolvetnaríka fæðu og ákveðnar kornvörur.
Fullt af ljúffengum og hollum uppskriftum fylgja.
Bætiefni
Bætiefnapakki með jurtablöndu sem styður við jafnan blóðsykur, bætir insúlínnæmni og efnaskiptaheilsu, hjálpar til við hreinsun lifrarinnar og styður við hjarta- og æðaheilsu.
Bætiefnapakkinn innifelur: Liver support & detox, Curalin, magnesíum og króm.
Netnámskeið
Námskeiðið er 100% á netinu og er með takmarkaðan fjölda þátttakanda hverju sinni.
Ný fræðslumyndbönd um hollt mataræði, blóðsykursstjórnun og heilsu, birtast í hverri viku á lokuðu heimasvæði og hægt er að horfa á þau hvenær sem þér hentar (aðgangur í 5 mánuði).
Stuðningur og hvatning
Hópþjálfun í gegnum netið til þess að auka driftkraft og hvatningu.
Við bjóðum upp á lokaðan facebook hóp þar sem okkur er frjálst að deila uppskriftum, spurningum, árangri og þess álíka.
Sílesandi blóðsykursmælir
Á hreinsuninni færðu 2ja vikna sílesandi blóðsykursmæli sem hjálpar þér að sjá nákvæmlega hvað virkar fyrir þig og þinn líkama.
Þannig lærir þú hvernig mismunandi fæða hefur áhrif á blóðsykurinn, streita, svefn, hreyfing, fasta og þess háttar.
Fræðslubók um blóðsykurinn
Þú færð 82 blaðsíðna fræðslubók eftir Önnu Lind um blóðsykur og efnaskiptaheilsu sem hjálpar þér að skilja betur hvernig líkaminn þinn starfar og hvaða þættir í lífsstílnum hafa áhrif á blóðsykurinn og heilsuna.
Í bókinni lærir þú m.a. hvernig blóðsykur hefur áhrif á orkustig, matarlyst, hormónajafnvægi, þyngd og bólgur í líkamanum.
Verð fyrir námskeiðið:
Námskeiðinu fylgir sílesandi blóðsykursmælir og 4 mismunandi bætiefni sem þú tekur yfir hreinsunina til að styðja þig í gegnum ferlið.
Kostnaður fyrir bætiefni er 23.900 kr. (fullt verð er 39.000 kr.)
Kostnaður fyrir blóðsykursmælirinn er 19.900 kr. (fullt verð er 26.990 kr.)
Þetta er heildsöluverð sem er einungis fyrir þátttakendur.
Sjá nánari upplýsingar um bætiefnin við skráningu.
Skref 1: Greiða staðfestingargjaldið (43.800 kr.).
Skref 2: Veldu greiðsluleið fyrir námskeiðsgjaldið:
Valkostur A: 90.000 kr. í staðgreiðslu.
Valkostur B: 32.107 kr. á mánuði í 3 mánuði.
Valkostur C: 16.728 kr. á mánuði í 6 mánuði.
Staðfestingargjald:
Bætiefni + mælir
-
Til þess að staðfesta skráningu á námskeiðinu þarf að greiða fyrir bætiefnapakkann og sílesandi blóðsykursmælinn.
-
-
Ekki er hægt að skrá sig í netnámskeiðið án þess að greiða fyrir bætiefnin.
Netnámskeið:
Raðgreiðsla
-
Hollar uppskriftir á rafrænu formi.
-
Sílesandi blóðsykursmælir í 2 vikur.
-
Fræðslufyrirlestrar, skjöl og hjálpargögn. Ný fræðsla birtist í hverri viku í 8 vikur.
-
Bætiefnapakki með fjórum mismunandi bætiefnum.
-
82 blaðsíðna fræðslubók um blóðsykurinn og efnaskiptaheilsu.
-
Stuðningur & lokaður umræðurhópur á facebook.
-
Ráðleggingar og afslættir af mínum uppáhalds heilsuvörum.
Netnámskeið:
Raðgreiðsla
-
Hollar uppskriftir á rafrænu formi.
-
Sílesandi blóðsykursmælir í 2 vikur.
-
Fræðslufyrirlestrar, skjöl og hjálpargögn. Ný fræðsla birtist í hverri viku í 8 vikur.
-
Bætiefnapakki með fjórum mismunandi bætiefnum.
-
82 blaðsíðna fræðslubók um blóðsykurinn og efnaskiptaheilsu.
-
Stuðningur & lokaður umræðurhópur á facebook.
-
Ráðleggingar og afslættir af mínum uppáhalds heilsuvörum.
Skráning í Blóðsykursnámskeið Holistic
"Er þessi hreinsun fyrir mig? Ég er ekki með insúlínviðnám" ...
Blóðsykurinn er ein af grunnstoðum efnaskiptaheilsu hjá öllum, óháð greiningum. Jafnvel hjá einstaklingum sem mælast með fullkomlega eðlileg gildi þá geta endurteknar sveiflur verið að hafa áhrif á svefn, orkustig, skap, hormónakerfi og vöðvaviðbrögð, allt saman þættir sem fólk upplifir daglega en tengir sjaldan við blóðsykurinn sjálfan.
Meirihluti heilbrigðra einstaklinga, sem eru ekki með insúlínviðnám, upplifa engu að síður miklar blóðsykurshækkanir á hverjum einasta degi. Slíkar hækkanir geta átt þátt í fjölbreyttum vandamálum, allt frá þyngdaraukningu og bólum til ófrjósemis, svefntruflana og orkuleysis.
Að huga að blóðsykursjafnvægi er því ekki aðeins spurning um að fyrirbyggja langvinna sjúkdóma síðar á ævinni. Þetta er val um betri daglega líðan: skýrari hugsun, jafnara skap, betri endurheimt eftir æfingar, stöðugri orku, betri svefn og heilbrigðara efnaskiptakerfi.
Heilsan bíður ekki - hún er besta fjárfestingin sem við getum nokkurn tímann gert!
Blóðsykurinn hefur áhrif á hverja einustu frumu, líffæri og lífeðlisfræðilegt ferli í líkamanum.
Þú þarft ekki að vera með insúlínviðnám til að finna fyrir áhrifum blóðsykurssveiflna. Blóðsykurinn hefur áhrif á alla – á hverjum degi og á hverri stundu. Hann hefur meðal annars áhrif á orkuna þína, skap, svefn, meltingu, þyngd, húðheilsu, hormónajafnvægi og getu líkamans til að bregðast við álagi.
Ólíkt öllum öðrum hreinsunum!
Blóðsykursnámskeið Holistic er ekki eins og hver önnur hreinsun. Hún snýst ekki um að svelta líkamann eða borða minna en við þurfum, langt í frá!
Frekar leggjum við áhersla á hámörkun næringarefna – borða fullnægjandi magn af næringarþéttri fæðu til þess að styrkja ónæmiskerfið, minnka bólgur og efla þarmaflóruna. Einnig einblínum við á föstur til að gefa líkamanum rými til að auka næmni sína fyrir insúlíni á ný.
Eftirfarandi fyrirlestrar eru innifaldir í námskeiðinu:
- Helstu áherslurnar í mataræðinu
- Skipulagning - matseðill og undirbúningur
- Hvað á að borða og hvernig á að versla inn fyrir vikuna
- 6 rætur blóðsykursójafnvægis
- Hvernig á að losna við sykurlöngun?
- Hvað felst í hollu mataræði
- Eiturefni í umhverfinu
- Ljós/birta og blóðsykurinn
- Hreyfing og blóðsykurinn
- Máttur föstu
- Steita og taugakerfið
- Svefn og blóðsykurinn
- Hugleiðsla og sjónræn íhugun
- Ávanar í átt að betra lífi
- Hámörkun næringarefna - hvernig getur þú nært líkama þinn sem best og hámarkað lífsgæðin?
- Næringarþéttni fæðunnar
- Nauðsynlegustu bætiefnin fyrir góða heilsu
- Mataræði forfeðra okkar
- Mataræði fyrir þinn líkama - miðað við þínar erfðir og efnaskipti
- Mataræði eftir hreinsunina - hvað er hollt mataræði til langs tíma?
Ég verð þinn leiðbeinandi í blóðsykursnámskeiði Holistic.
Sjálf glímdi ég við blóðsykursójafnvægi í mörg ár, ásamt ýmsum heilsufarsvandamálum, magaverkjum, bakflæði og fleiru.
Ég er hér til þess að aðsoða þig að taka ábyrgð á eigin heilsu líkt og ég hef sérhæft mig í.
Ég er menntuð í Functional Medicine eða hagnýtri lækningu frá The School of Applied Functional Medicine í Bandaríkjunum. Þessi fræði leggur áherslu á að finna rótarástæðu sjúkdóma eða vanlíðunar á náttúrulegan hátt, án lyfja. Einnig er ég heilsumarkþjálfi og tók nám í hreyfivísindum hjá CHEK Institute og nám í Holistic Lifestyle Coaching eða heildrænni lífsstílsþjálfun stig 2 hjá CHEK.
Ásamt því hef ég lokið námi í nuddi, einkaþjálfun og tveimur jógakennaranámum, bæði frá Tælandi og Íslandi.
Ég hef haft gríðarlegan áhuga á heilsu í mörg ár, bæði andlegri og líkamlegri. Ég blanda minni þekkingu saman til að veita þér sem bestu þjónustu og mögulegt er.
HÆ! ANNA LIND HEITI ÉG
Algengar spurningar
Hver er heildarkostnaður fyrir námskeiðið?
Kostnaður fyrir netnámskeiðið er: 90.000 kr
Kostnaður fyrir bætiefni og blóðsykursmælinn er um 43.800 kr (miðast við heildsöluverð sem er einungis fyrir þátttakendur).
Samtals kostnaður: 133.800 kr (hægt að greiðsludreifa).
Eftir að staðfestingargjaldið hefur verið greitt er hægt að dreifa greiðslum fyrir netnámskeiðinu sem gerir um 32.107 kr á mánuði í 3 mánuði og 16.702 kr á mánuði í 6 mánuði.
Hvenær hefst næsta námskeið og hvernig get ég skráð mig?
Hvernig virkar blóðsykursnámskeið Holistic?
- Hreint mataræði: Við einblínum á lágkolvetnamataræði í 2 mánuði og sniðgöngum fæðu sem hækkar blóðsykurinn og eykur bólgur. Við einblínum á fæðu ríka af fitu og próteini sem stuðlar að jöfnum blóðsykri og góðri efnaskiptaheilsu.
- Bætiefnapakki: Sérvalin bætiefni fylgja námskeiðinu til þess að styðja við hreinsun. Við tökum inn bætiefnin í 2 mánuði sem styður við jafnan blóðsykur, góða efnaskiptaheilsu, bætir insúlínnæmni, hjálpar til við hreinsun lifrarinnar og styður við hjarta- og æðaheilsu.
- Fyrirlestrar & fræðsla: á námskeiðinu færðu aðgang að tugi fyrirlestra um almenna heilsu, bætt mataræði, blóðsykursstjórnun, taugakerfið og fleira!
Ný myndbönd birtast í hverri viku og hægt er að horfa á þau eins oft og þú vilt út hreinsunina (aðgangur að lokuðu heimasvæði í 5 mánuði). - Sílesandi blóðsykursmælir:
Á hreinsuninni færðu 2ja vikna sílesandi blóðsykursmæli sem hjálpar þér að sjá nákvæmlega hvað virkar fyrir þig og þinn líkama. Þannig lærir þú hvernig mismunandi fæða hefur áhrif á blóðsykurinn, streita, svefn, hreyfing, fasta og þess háttar.
- Fræðslubók um blóðsykurinn: Þú færð 82 blaðsíðna fræðslubók eftir Önnu Lind um blóðsykur og efnaskiptaheilsu sem hjálpar þér að skilja betur hvernig líkaminn þinn starfar og hvaða þættir í lífsstílnum hafa áhrif á blóðsykurinn og heilsuna. Í bókinni lærir þú m.a. hvernig blóðsykur hefur áhrif á orkustig, matarlyst, hormónajafnvægi, þyngd og bólgur í líkamanum.
Stuðningur & hvatning: Námskeiðinu fylgir aðgangur að lokuðum facebook sem er einungis fyrir þátttakendur á hverju námskeiði. Þar er hægt að fá svör við sínum spurningum & vangaveltum, deila uppskriftum, árangri og vera samferða tugi íslendinga í þessu heilsuferðalagi.
Vertu hluti af okkar lokaða samfélagi þar sem þú færð stuðning, ráð og hvatningu frá sérfræðingum og öðrum þátttakendum.
Hver er tilgangur & ávinningur hreinsunarinnar?
Á þessu tveggja mánaða námskeiði færðu verkfæri til að skilja hvernig þinn blóðsykurinn virkar. Hvernig daglegar venjur – mataræði, svefn, streita, föstur og hreyfing – hafa áhrif á blóðsykurssveiflur og orku. Og hvaða aðferðir styðja stöðugan blóðsykur og góða heilsu til frambúðar.
Námskeiðið hentar jafnt þeim sem vilja fyrirbyggja insúlínviðnám og efla heilsu sína almennt, einnig þeim sem glíma við insúlínviðnám eða sykursýki 2 og vilja taka virkan þátt í að endurheimta betra jafnvægi og bætta líðan.
Blóðsykurinn hefur áhrif á hverja einustu frumu, líffæri og lífeðlisfræðilegt ferli í líkamanum.
Þú þarft ekki að vera með insúlínviðnám til að finna fyrir áhrifum blóðsykurssveiflna. Blóðsykurinn hefur áhrif á alla – á hverjum degi og á hverri stundu. Hann hefur meðal annars áhrif á orkuna þína, skap, svefn, meltingu, þyngd, húðheilsu, hormónajafnvægi og getu líkamans til að bregðast við álagi.
Ávinningur hreinsunarinnar: Þó að árangur geti verið mismunandi eftir einstaklingum, þá er algengt að þátttakendur upplifi aukna orku og lífskraft, skýrari hugsun & betri einbeitingu. Margir þátttakendur upplifa einnig betri þyngdarstjórnun & jafnari blóðsykur, öflugra ónæmiskerfi, betri svefngæði og minna tilfinningalegt álag. Á meðan aðrir upplifa minni húðvandamál, aukið úthald og betri endurheimt. Ásamt fleiri þáttum líkt og minni bólgumyndun, betri upptöku næringarefna og betra hormónajafnvægi.
Hvernig er mataræðið á hreinsuninni?
Fæða sem við viljum forðast á hreinsunni: Við sniðgöngum sykur í öllu formi m.a. hvítan sykur, ávexti, djús, takmörkum rótargrænmeti (gulrætur eru í lagi), bakkelsi & þess háttar. Forðumst unnin kolvetni eins og brauð og pasta, glúten og transfitur.
Yfir þessa þrjá mánuði einblínum við á hreint mataræði ríkt af íslensku kjöti, innmat, fisk og sterkjulitlu grænmeti, hollar fitusýrur (avókadó, kjöt, ólífuolía, kókosolía). Ávexti með lágan sykurstuðul (s.s. ber og græn epli), hnetur og fræ, og bólguminnkandi jurtir.
Mataræðið á hreinsunni hjálpar til við að jafna blóðsykurinn og stuðla að jafnvægi í örveruflóru þarmanna.
Innifalið í hreinsuninni er uppskriftarbók með ljúffengum uppskriftum með öllu því sem er ráðlagt að borða.
Athugið: Djúphreinsunin snýst ekki um að svelta líkamann. Þvert á móti er lögð áhersla á að hámarka næringarefnin og borða fullnægjandi magn af næringarþéttri fæðu.
Hvaða bætiefni eru innifalin í námskeiðinu?
Í 8 vikur tökum við inn 4 sérvalin bætiefni sem styðja við jafnan blóðsykur, góða efnaskiptaheilsu, bæta insúlínnæmni, hjálpa til við hreinsun lifrarinnar og styðja við hjarta- og æðaheilsu.
Á hreinsuninni tökum við inn eftirfarandi bætiefni: Curalin, Liver support & detox, magnesíum og króm.
Áður en þú greiðir fyrir bætiefnin þá færðu nákvæma innihaldslýsingu af öllum bætiefnunum sem þú getur skoðað ef þú hefur áhyggjur af ofnæmi 🙂
Hvað er insúlínviðnám? Og hver eru helstu einkenni þess?
Insúlín er hormón sem framleitt er í brisinu og hjálpar líkamanum að flytja sykur (glúkósa) úr blóðinu inn í frumurnar þar sem hann er notaður sem orka.
Insúlínviðnám (insulin resistance) myndast þegar frumur líkamans – sérstaklega í vöðvum, lifur og fituvef – verða minna næmar fyrir áhrifum insúlíns. Þá þarf líkaminn að framleiða meira og meira insúlín til að halda blóðsykrinum stöðugum.
Í fyrstu getur líkaminn haldið blóðsykrinum innan eðlilegra marka með því að framleiða meira insúlín. Með tímanum getur þetta ástand hins vegar leitt til langvarandi hækkaðs insúlíns, blóðsykursójafnvægis og að lokum sykursýki af tegund 2.
Insúlínviðnám er einnig tengt bólgum í líkamanum, hormónaójafnvægi og aukinni áhættu á hjarta- og æðasjúkdómum.
Algeng einkenni insúlínviðnáms. Margir finna ekki strax fyrir einkennum, en eftirfarandi merki eru algeng:
- Mikil sykurlöngun eða löngun í kolvetnaríkan mat
- Orkuleysi eða syfja eftir máltíðir
- Erfiðleikar með að léttast eða aukin fitusöfnun, sérstaklega á kvið
- Óstöðugur blóðsykur – orkufall yfir daginn
- Hungurtilfinning, jafnvel stuttu eftir að hafa borðað
- Heilaþoka og einbeitingarskortur
- Húðbreytingar, t.d. dökkar eða þykkar húðfellingar á hálsi eða undir höndum
- Hormónaójafnvægi, t.d. PCOS hjá konum
- Hækkuð þríglýseríð eða blóðfita (LDL)
Af hverju skiptir þetta máli?
Insúlínviðnám getur verið til staðar árum saman áður en sykursýki greinist. Þess vegna er mikilvægt að þekkja merkin og vinna með mataræði, hreyfingu og lífsstíl til að bæta insúlínnæmi líkamans.
Góðu fréttirnar eru að insúlínviðnám er oft afturkræft með réttum lífsstílsbreytingum.
Er þetta raunhæft samhliða vinnu og fjölskyldu?
Flestir þátttakendur hafa farið í gegnum hreinsunina samhliða fullri vinnu, námi og fjölskyldulífi – og upplifað að hún hafi í raun styrkt þau í daglegu lífi, með aukinni orku, skýrleika og betri líðan.
Á námskeiðinu opnast fyrirlestrar vikulega yfir 8 vikna tímabil og þú getur horft á fræðsluna þegar þér hentar – á kvöldin, um helgar eða í styttri lotum þegar tími gefst. Aðgangur að öllu námsefninu er opinn í 5 mánuði.
Mataræðið og verkferlarnir eru einfaldir, skýrir og raunhæfir. Áherslan er ekki á fullkomnun heldur á stöðug, meðvituð skref í átt að betri heilsu og aukinni vellíðan.
Margir finna að þegar líkaminn fer að starfa betur – meltingin lagast, orkustig hækkar og bólgur minnka – þá sparast orka og daglegt líf verður léttara. Hreinsunin snýst fyrst og fremst um að breyta ávönum og bæta inn nýjum sem styðja heilsu og jafnvægi, þannig að þú eigir auðveldara með að takast á við daglegt líf og njóta þess til fulls.
Vinaafsláttur
Fáðu 2 vinkonur/vin til þess að taka hreinsunina með þér og fáðu 20% afslátt af námskeiðinu. ATH. 3 vinir saman fá 20% afslátt hver fyrir sig. Það er enn meiri stuðningur og samstaða að taka heilsuna í gegn saman! Hafðu samband við okkur hér fyrir neðan og taktu fram nöfnin á 2 vinkonum/vinum sem taka þátt með þér og þær/þeir fá einnig afsláttinn.
Viltu fá upplýsingar um hvenæs næsta námskeið hefst?
Ef þú vilt nánari upplýsingar þá geturðu sent fyrirspurn hér fyrir neðan.
Byrjaðu ferðalag þitt að betri heilsu
Á þessu námskeiði lærir þú hvernig blóðsykurinn hefur áhrif á allt í líkamanum - orku, svefn, skap, hormóna, hungur, efnaskipti & fleira.